BLESS Exem
24 janúar 2012 - Heiða Þórðar


Um árabil barðist ég við þrálátt exem á höndum. Stundum var ég það slæm að pakka þurfti höndunum inn í sáraumbúðir, í marga mánuði svaf ég með hanska. Ég gekk á milli lækna landshorna á milli og fékk misvísandi greiningu. Ýmist var það kuldanum um að kenna eða rakanum í því landi sem ég var í það skiptið.
Ég fékk mína lækningu að lokum og hef haldist góð síðan. Mín hjálp fólst aðallega í breyttum matarvenjum, klárlega hjálpaði það mér að halda mér góðri. Ég fékk senda reynslusögu frá lesanda og ég stóðst ekki mátið að birta hana, vonandi öðrum lesendum til góða:
Smá hól um ekkert smá gott krem
Ég er búinn að vera með þrálátt exem á öðrum sköflungnum í um 2 ár, þó einkum á veturna. Í fyrstu spáði ég ekki svo mikið í því en svo fór þetta að ágerast og mig að klæja ægilega og svo klóraði maður sér, stundum til blóðs. Ég ákvað fyrir rúmu ári síðan að ég nennti þessu ekki lengur og að ég skyldi gera eitthvað í þessu. Það er svo sem lítið annað að gera við exemi en að bera á það krem, nema að maður komist að undirliggjandi ástæðu þess svo sem ofnæmi eða óþoli einhvers konar.
Ég fór því að bera á þetta alls konar jukk, græðandi og mýkjandi og rakagefandi og svo framvegis. Ég hef prófað flest af þessum hefðbundnu raka- og mýkingarkremum, auk vaselíns og sérstakra exem-krema, sum þeirra eru úr náttúrulegum jurtum. Árangurinn hefur vægast sagt verið takmarkaður. Eitthvað gat ég jú haldið þessu í skefjum en aldrei losnað við það fyrr en líða fór að sumri. Það eina sem virkaði var frekar sterkt sterakrem, 2,0% eða sterkara. Mildisone 1,0% hafði t.a.m. engin áhrif. En maður getur náttúrulega ekki verið að bera á sig stera út í eitt án þess að valda varanlegum skaða á húðinni.
Til allrar hamingju fann ég þó loks krem sem virkaði þegar ég var við það að gefa upp alla von! Það var heimagerða jurtakremið hennar Möggu Hrannar í Sandgerði. Ég bar það á í 2 daga og sá strax heilmikinn mun! Nokkrum dögum síðar var exemið alveg horfið og hef ég getað haldið því niðri og húðinni eins og nýrri (miðað við svona gamalt módel) með því einu að bera kremið á af og til. Ég vil því koma því áleiðis við aðra sem kunna að vera í mínum sporum og eru orðnir vondaufir í baráttunni við exem að prófa endilega exemkremið hennar Möggu. Það svínvirkaði alla vega á mig. Bless bless exem!
Kveðja,
Davíð
Hægt er að hafa samband við Möggu Hrönn á facebook eða senda tölvupóst á maggahk@visir.is.
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"Don't compromise yourself. You are all you've got." —Janis Joplin-





