logo

Mjólkurbað Kleópötru

10 júlí 2012 - Heiða Þórðar

Spegillinn er að verða stútfullur af skemmtilegum hugmyndum handa þér. Bara fyrir þig eða fyrir þá sem þig þekkja og þú vilt gefa gjöf. Dund og dekur og dásemdir eru hér lykilorðin. Baðbombur, gloss og fleira og fleira. Við erum rétt að byrja, bráðum finna flestar fleira en eitt við sitt hæfi. Og það kostar minna en handlegginn þetta dúllerí. Svo miklu meira gaman svona. Hugsaðu um það í baði!
...og láttu það eftir þér að baða kroppinn upp úr þessu lúxus baðvatni.
 
2 bollar mjólkurduft
2 msk þurrkaður appelsínubörkur
2 teskeiðar þurrkuð lavender blóm
2 teskeiðar þurrkuð rósmarín
 
Blandið öllu hráefninu saman í skál og hrærið vel. Setjið í glærar klukkur. Notið ½ bolla í hvert baðvatn. Látið það eftir ykkur að liggja í blöndunni í tuttugu mínútur.
 
Svo er sniðugt að skella þurrkuðum blómum í fallega blúndu eða silkislaufu utan um krukkuna. Þar með er komin falleg gjöf líka.
 
heida@spegill.is
Höfundur: Heiða Þórðar
"It is a terrible thing to see and have no vision."   H. Keller-