logo

Brostu beibí

4 ágúst 2012

Tennurnar eiga það til að breyta lit eftir því sem árin líða.
 
Pyngjan leyfir kannski ekki bruðl og eyðslu í rándýrar meðferðir til hvíttunar...en við viljum brosa breitt.
Hvað er til ráða?
 
Eldrauð jarðarber og skjannahvítur matarsódi er ódýr lausn í einum grænum...(bara jólalitirnir mættir í stíl við brosið)!
 
Merðu jarðarberið í klessu og blandaðu matarsóda saman við. Notaðu mjúkan tannbursta til að bera gumsið á tennurnar.
 
Láttu bíða á tönnunum í 5 mínútur og burstaðu að því loknu vel með tannkremi til að losa þig við berjasódaleðjuna. Skolaðu...og notaðu tannþráð ef þér finnst þú þurfa þess (fræin úr berinu gætu potað sér inn á milli tanna).
 
Þetta máttu svo gera einu sinni í viku...til dæmis núna og svo aftur næsta sunnudag!
 
Ritstjórnin með hvítu tennurnar!
 
 
"It is a terrible thing to see and have no vision."   H. Keller-