Heimatilbúinn andlitshreinsir
16 ágúst 2012

Það er ekki venjulegt magnið af upplýsingum og skemmtilegheitum á blessuðu internetinu. Á ferðalagi um bloggheima með fólki sem ég þekki ekki neitt...nema suma sem orðnir eru fastagestir á loftinu, ég þykist orðið þekkja þá inn og út. En hér er bráðsnjall kvenmaður á ferðinni, rakst á hana rétt í þessu. Skoðaðu bara...
Í þennan heimalagaða andlitshreinsi þarf þetta:
Ólífuolíu
Glýserín
Fljótandi andlitssápu eins og til dæmis barnasápu sem hindrar táramyndun
Vatn
Settu 2 tsk af sápunni og 2 tsk af vatni, ásamt 2 tsk af glýseríni og hálfum bolla af olíunni í blandarann. Blandaðu þar til blandan er þykk, kremkennd og mjúk.
Komdu svo afurðinni í sápupumpu og skolaðu af þér andlitsfarðann með stæl: Nuddaðu á andlitið og hálsinn og augun líka í sirka mínútu. Þrífðu af með volgu þvottastykki. Hreinsar og nærir.
Það má fjórfalda uppskriftina en þá getur hún enst þér í 6 mánuði...geymdu bara birgðirnar í flöskunni undan olíunni og svo fyllirðu á pumpuna þegar þörf krefst. Geymist í allt að eitt ár.
steina@spegill.is
"It is a terrible thing to see and have no vision." H. Keller-
Leita






