Gríman 5. hluti
18 ágúst 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir


Andlegt ofbeldi
Ekki halda að þú eigir ekki í kasti við siðblindan maka þó svo hann berji þig ekki í buff eða misnoti þig gróflega kynferðislega. Sumir beita aðallega andlegu ofbeldi. Oft fylgir því einhverskonar líkamleg snerting eða hrindingar sem eru fyrst og fremst til að sýna þér hvað viðkomandi gæti meitt þig mikið ef þú ert ekki nákvæmlega eins og þér er ætlað að vera.
Ekki heldur gera þau mistök að halda að þú sért sérstök þó svo fyrirrennarar þínir hafi verið geðveikir. Þetta, líkt og það sem fjallað hefur verið um áður, er ekkert nema siðblinda í öllu sínu hættulega veldi.
Lítum aðeins á andlega ofbeldið
Allir geta orðið fyrir barðinu á andlegu ofbeldi. Aldur eða kyn skiptir þar engu máli. Andlega ofbeldið er það sem er síst sýnilegt af ofbeldi þar sem því fylgja engir áverkar – aðrir en á sálinni. Þess vegna er oft gert lítið úr þessari tegund ofbeldis þó svo í raun það skilji eftir sig djúp sár sem aldrei hverfa.
Líkt og í öðrum tegundum ofbeldis er andlegt ofbeldi notað til að ná stjórn yfir fórnarlambinu. Í ofbeldinu felst að gera fórnarlambið hrætt, fullt samviskubits og skammar. Því er jafnvel hótað líkamsmeiðingum eða að meiða aðra nákomna.
Í samböndum þar sem andlegu ofbeldi er beitt er algengast að fórnarlambið missi smám saman sjálfsvirðingu sína, verði kvíðið sem leiðir síðan til alvarlegs þunglyndis. Því finnst það vera hjálparvana. Engum á að þurfa að líða svona í sambandi.
Merki um andlegt ofbeldi eru fjölmörg. Það augljósasta er þó ef þú ert hræddur við maka og finnst þú þurfir að tipla á tánum í kringum hann. Sífellt að passa upp á hvað þú segir eða gerir til að koma í veg fyrir að allt springi í loft upp. Maki sem beitir andlegu ofbeldi gerir líka lítið úr þér og gerir hvað sem er til að hafa algjöra stjórn á þér.
Í langflestum tilfellum er um siðblindu að ræða í þessum samböndum þó svo líkamlegt eða kynferðislegt ofbeldi eigi sér ekki stað.
Á eitthvað af þessu við um þig:
Þér finnst þú vera hrædd við maka þinn oftast nær?
Reynir að forðast ákveðin umræðuefni til að gera makann ekki reiðan?
Þér finnst þú getir ekkert gert rétt til að geðjast honum.
Þér finnst þú eigir það skilið að vera sár og það sé komið illa fram við þig?
Þú veltir fyrir þér hvort það sért þú sem ert geðveik?
Tilfinningar þínar eru dofnar?
Á eitthvað af þessu við maka þinn:
Hann hefur erfitt og taumlaust skap?
Hann meiðir þig eða hótar að meiða þig?
Hann hótar að taka börnin frá þér eða meiða þau?
Hann hótar sjálfsmorði ef þú yfirgefur hann?
Hann neyðir þig til kynferðisathafna?
Hann eyðileggur muni sem þú átt?
Gerir hann lítið úr þér?
Gagnrýnir hann þig oft á tíðum?
Kemur hann það illa fram við þig að þú skammast þín fyrir að láta aðra vita?
Lætur sem hann heyri ekki, eða gerir lítið úr því sem þú afrekar?
Ásakar þig fyrir sína eigin ofbeldisfullu hegðun?
Kemur fram við þig eins og dauðan hlut fremur en persónu?
Er hann yfirmáta afbrýðsamur?
Stjórnar hann gerðum þínum og hegðun?
Kemur hann í veg fyrir að þú hittir vini og ættingja?
Hefur hann ítökin í peningamálum, skammtar þér jafnvel peninga?
Er hann alltaf að tékka á þér?
Kannski meiðir hann þig ekki oft líkamlega, en einu sinni er einu sinni of oft. Það mun gerast aftur.
Þegar fólk hugsar um heimilisofbeldi sér það oftast fyrir sér konu sem hefur verið barin eða slösuð á annan líkamlegan hátt. En það eru ekki öll sambönd sem innihalda líkamlegt ofbeldi. Það þýðir þó ekki að það sé ekki um ofbeldi að ræða. Andlegt ofbeldi er ekki síður eyðileggjandi en líkamlegt ofbeldi. Það tortímir fórnarlambinu á alveg sama hátt. Það er bara oft erfiðara að koma auga á það. Fórnarlambið sjálft á jafnvel erfiðara með að átta sig á því að það er beitt ofbeldi.
Það er engin efi þegar um líkamlegt ofbeldi er að ræða en það andlega getur verið lúmskt. Fórnarlambið er oft orðið svo óttaslegið að því finnst það ekki geta farið neitt, sagt neitt eða gert neitt. Það er jafnvel búið að telja fórnarlambinu trú um að enginn annar vilji líta við því. Það sé ljótur aumingi sem er einskis verður.
Það er öskrað á það, kallað ljótum nöfnum. Kennt um alla hluti. Allri hegðun stjórnað og það er ekkert eftir nema dauð skelin af þeirri manneskju sem eitt sinn var.
Sumir halda að líkamlegt ofbeldi sé hættulegra þar sem fórnarlambið getur endað illa slasað á spítala.
Það er rangt. Sár þess sem er beittur andlegu ofbeldi eru ekki síður alvarleg og rista alveg jafn djúpt. Stundum jafnvel dýpra.
Heimildir: http://helpguide.org/mental/domestic_violence_abuse_types_signs_causes_effects.htm
-þar finnurðu 3ja hluta og koll af kolli
Höfundur: Lísa Björk Ingólfsdóttir
"It is a terrible thing to see and have no vision." H. Keller-
Leita





