Hvenćr á ađ lögleiđa Barnasáttmálann? Vörn fyrir börn?
18 ágúst 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Mannréttindasáttmáli Evrópu hefur lagagildi á Íslandi, en sama er ekki að segja um Barnasáttmálann.
Mannréttindasáttmálinn er til að verja hagsmuni manna svo til að mynda þeir sæti ekki ómannúðlegum refsingum, séu sviptir frelsi án dóms og laga ásamt mörgu öðru sem ég ætla ekki að tíunda hér, enda geta flestir flett honum upp.
En hann getur líka mögulega komið meintum afbrotamönnum vel.
Kíkjum á 6. gr.
2. Hver sá sem borinn er sökum um refsiverða háttsemi skal talinn saklaus uns sekt hans er sönnuð að lögum.
3. Hver sá sem borinn er sökum um refsiverða háttsemi skal eigi njóta minni réttar en hér greinir:
a. Hann fái án tafar, á máli sem hann skilur, vitneskju í smáatriðum um eðli og orsök þeirrar ákæru sem hann sætir.
b. Hann fái nægan tíma og aðstöðu til að undirbúa vörn sína.
c. Hann fái að halda uppi vörnum sjálfur eða með aðstoð verjanda að eigin vali.
Hafi hann ekki nóg fé til að greiða lögfræðiaðstoð skal hann fá hana ókeypis ef það er nauðsynlegt vegna réttvísinnar.
d. Hann fái að spyrja eða láta spyrja vitni sem leidd eru gegn honum. Séð skal um að vitni, sem bera honum í vil, komi fyrir dóm og séu spurð á sama hátt og þau vitni sem leidd eru gegn honum.
e. Hann fái ókeypis aðstoð túlks ef hann skilur hvorki né talar mál það sem notað er fyrir dómi.
Vissulega er þetta í raun réttlætanlegt. Engann skyldi dæma án dóms og laga. Það sem hinsvegar er erfitt í mörgum tilfellum er „að sanna sekt“.
Horfum á nauðgunarmál, ofbeldismál gagnvart einstaklingum (þ.m. heimilisofbeldi) og valdbeitingu gagnvart börnum sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér.
Í mannréttindarsáttmálanum er líka talað um tjáningarfrelsi og sennilega er sá partur sáttmálans mest umdeildur, þar sem oft virðist ráðist gegn tjáningarfrelsinu.
En hvað um Barnasáttmálann?
Ísland fullgilti Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna árið 1992. Sáttmálinn hefur ekki verið lögfestur hér en fullgildingin felur í sér að Ísland er skuldbundið að þjóðarrétti að til að virða og uppfylla ákvæði hans.
Árið 2011 var fjallað um löggildingu Barnasáttmálans á Íslandi af sérfræðinganefnd Barnasáttmálans.
Sérfræðinganefnd Sameinuðu þjóðanna lagði fjölmargar spurningar fyirr sendinefndina og hvatti m.a. til þess að barnasáttmálinn yrði lögfestur á Íslandi, líkt og mannréttindasáttmáli Evrópu.
Það hefur þó ekki enn verið gert.
Höfundur: Lísa Björk Ingólfsdóttir
"It is a terrible thing to see and have no vision." H. Keller-






