logo

Lísa Björk Ingólfsdóttir

Pistlahöfundur

Lesa um höfund

Hugleiðing á kjördag

Engar áhyggjur, þetta er algjörlega ópólitískur pistill. Eftir miklar pólitískar pælingar og alls kyns baráttu tók ég þá ákvörðun að fara í smá pólitíska pásu. Allavega segi ég sjálfri mér það, trúi því hver sem vill.
 
En þegar ég hlustaði á tvær litlar skottur sem eru að dunda saman á mis hávaðasaman hátt eftir í hverju dundið felst, mundi ég allt í einu eftir hvernig kjördagur var þegar ég var á þeirra aldri.
 

Blúndurass í fjallasal og stinnir rassar

Elsku krúttbomburnar mínar. Þið kannski hélduð að ég væri dauð en því fer fjærri. Mundi aldrei gera þeim sem fíla mig ekki það að ánægjuefni. Eflaust eru allir orðnir gegnsýrðir af kosningarpistlum og fallegum loforðum sem innihalda stafinn X – og svo einhvern annan staf. Persónulega ákvað ég að snúa mér að annarsskonar fegurð. Fegurð náttúru sem engu lofar heldur er bara.

Smásaga - Kuldi

Afhverju var svona andstyggilega kalt? Og ljósastaurarnir – þeir hæddust að mér í myrkrinu og kuldanum. Stóðu þarna í beinni röð eins og nasistaforingjar og lýstu upp grátbólgið andlit mitt.
 
Eins og þeir vildu vera vissir um að ef ég mætti einhverjum þá sæist langar leiðir að ég væri misheppnuð. Ekkert annað en sæðistunna fyrir aumingjann sem ég hafði tekið inn í líf mitt. Boxpúði fyrir kreppta hnefana og ílát til að taka við svívirðingum og hótunum.

Dagbók Blúndunagla - Á Ísafirði (framhald)

Við Borgarblúndurnar vöknuðum vel úthvíldar og algjörlega afslappaðar á laugardagsmorgni til að fara niður í morgunverð á hótelinu, þar sem skottan var nú þegar búin að bræða hug og hjörtu allra. Hún var eins og heima hjá sér. Fór sjálf uppá herbergi ef hana vantaði eitthvað og spjallaði við starfsmenn eins og bestu vini sína.
 

Dagbók Blúndunagla: Aldrei fór ég vestur

Ég er Borgarblúnda í húð og hár þó svo ég sé ættuð héðan og þaðan. Hér innan um stresstöskurnar, ys og þys hef ég dvalið allt mitt líf og kunnað vel við. Þess utan er ég afskaplega vanaföst og heimakær blúnda.
 
En svo bregðast krosstré sem önnur tré.
 
 

Kossar og kynlíf

Einhverntímann las ég frábæra grein um tenginguna á milli kossa og kynlífs. Er ekki nógu reynd til að geta staðfest allt sem þar kom fram, en fannst samt eitthvað til í henni.

Börn sem alast upp hjá siðblindu foreldri

27 febrúar 2013 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Það er alltaf erfitt að alast upp hjá siðblindri móður eða siðblindum föður. Helstu einkenni slíks uppeldis og afleiðingar þess eru af ýmsum toga.
 

Smásaga: ÁST

26 febrúar 2013 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Lítill sólargeisli smeygði sér inn um gluggann og dansaði á andliti hans uns hann vaknaði. Hann opnaði teygði sig og opnaði svefnþung augun.
 
Birtan frá morgunsólinni fyllti umhverfi hans af dansandi lífi og hrakti í burtu myrkrið og þessa einmanalegu tilfinningu sem fylgdi því að liggja einn í dimmunni. Þegar augun gátu ekki lengur séð umhverfið og ekkert yfirgnæfði þögnina nema hjarsláttur hans og einstaka vein í sortanum.
 

Þekkirðu einkenni siðblindu?

13 febrúar 2013 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Umfjöllun um siðblindu hefur ekki verið mikil hér á landi. Þó eru siðblindir um 1 – 2 % mannkyns samkvæmt nýlegum rannsóknum.

Fá börnin rödd með nýjum barnalögum?

Það hefur ekki farið fram hjá þeim sem huga að málefnum barna að ný barnalög tóku gildi um áramótin. Með þeim eiga að fylgja nýjar áherslur í málefnum þeirra sem flestir vona að verði börnunum til hagsbóta.

Smásaga - Tennurnar glömruðu og ég titraði öll!

Ég veit ekki hvort skjálftinn stafaði af hræðslu eða kulda. Tennurnar glömruðu og ég titraði öll. En ég þorði ekki að hreyfa mig. Fannst ég örugg þar sem ég var. Ég vissi samt að ég gæti ekki falið mig hérna mikið lengur. Ég yrði að gera eitthvað.

Aldur er afstæður

 
Sumir óttast það að eldast. Kannski ekki skrýtið á tímum æskudýrkunar. Aðrir sætta sig við að verða virðulegt eldra fólk á besta aldri.
Hætta öllum kjánaskap og taka því með yfirvegaðri ró að nú sé hið mikla forty brostið á og þá beri manni að skipta um stíl.
 
 

Lært vonleysi sem leiðir til þunglyndis - Kerfisvandamál

Sífellt fleiri stíga fram á vefmiðlum og deila reynslu sinni af þunglyndi, sem er vel. Hér er nefninlega um að ræða sjúkdóm sem er það algengur að innan geðsviðs er hann kallaður „Kvef geðheilsunnar“. Ætla má að á hverjum tímapunkti glími um 5% almennings á norðurlöndunum við þunglyndi á einhverju stigi þó svo prósentan sé öllu hærri þegar horft er til æviskeiðs fólks.

Jólatré í febrúar

Hún æddi inn á mitt stofugólf, frú Fullkomin. Hælaháu stígvélin voru alsett göddum. Minkapelsinn angaði af Channel no 5. Krullurnar á höfðunu á henni voru fullkomlega lagaðar – af hárgreiðslumeistara. Það var augljóst að andlitsförðunin var ekki ein af þessum sem tekur tíu mínútur að skella á sinn stað.

Fylgja fortíðar

Það geta víst flestir sammælst um það að atvinnuleysi er böl. Þjóðin er búin að ramba á barmi allskonar skelfinga og margir orðnir ansi þreyttir og lúnir, ef ekki búnir á því.
 
Samt eru alltaf ljósglætur inn á milli. Málið er bara að finna þær og njóta þeirra.
 

Væntumþykja hverfur ekkert

Það er svo sorglegt að halda að skilnaður milli hjóna þurrki út væntumþykju.
 
Stundum gerist það að fólk á bara ekki saman. Jafnvel eftir margra ára hjónaband sem var gott, en ekki nógu gott til að einstaklingarnir í hjónabandinu fengu það sem þeir þurftu á að halda.

Föstudagsmorgunn -smásaga

Hún laumaði sér varlega fram úr rúminu til að vekja ekki ístrubelginn eins og hún kallaði hann. Reyndar var ekki mikil hætta á því að hann vaknaði miðað við allar bjórdollurnar sem lágu á víð og dreif um herbergið. Hún teygði sig í Vodkaflöskuna um leið og hún settist á græna snjáða sófann í horninu, fékk sér vænan sopa og andvarpaði.

Ég er jólabarn

19 desember 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Það er engin árstími fyrir mér betri en jólin. Eiginlega elska ég pakka. Stóra, litla, harða og mjúka. Innihaldið hefur í raun aldrei verið aðalatriðið, frekar hugurinn og spennan við að taka utan af einhverju sem maður veit ekki hvað er.

Með gubbuna í hálsinum og tár í augum

18 desember 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Okey – hvernig væri að viðurkenna að stjórnmálamenn hafa verið gjörsamlega siðspilltir og uppteknir við að maka sinn eigin krók. Þetta fólk sem trúgjarn almenningur kýs á þing til að fara með málefni sín, treystir fyrir tilveru sinni.

Hurðaskellir er hrekkjóttur

18 desember 2012 - Lísa Björk Ingólfsdóttir

Það er ágætis ráð að sofa með eyrnatappa þegar Hurðaskellir fer á stjá. Hann er skelfilegur stríðnispúki og elskar að láta fólk hrökkva upp með andfælum um miðja nótt með látum og hurðaskellum. En eins og flestir vita þá vilja stríðnispúkar sjá árangur gjörða sinna svo ef enginn vaknar þá hypjar hann sig sneiptur í burtu.
 
Ekkert gaman.
"It is a terrible thing to see and have no vision."   H. Keller-