logo

Gísling hugarfarsins

20 maí 2013

Gísling hugarfarsins er að mínu mati það hættulegasta sem við lifum við í dag í vestrænum þjóðfélögum. Við sem almenningur lifum i þessari gíslingu alla daga allan daginn án þess að setja nein spurningamerki.

Framtíðarlausnir eða skammtímavermir

16 maí 2013

Ég er nánast 100% viss um að með þeirri ríkistjórn sem nú kemur muni ekki margt breytast á afgerandi máta.
 
Ég er ekki að segja það vegna þess að ég sé eitthvað sérstaklega á móti flokkunum B og D. Ég tel mig hvorki hægri né vinstrisinnaða þó að ég hafi þá hugsjón að allir eigi að geta verið til í þjóðfélaginu okkar og notið lífsgæða

David Beckham kynþokkafyllsti pabbinn

23 april 2013

Erum við ekki allar sammála?
 
Hann er fallegur, smart, fótboltagaur, algjör pabbi og góður eiginmaður.
 
Hann á synina Brooklyn, Romeo og Cruz og litlu Harper sem er einkadóttir hans og Victoriu..
 

Hreinsaðu lifrina eftir allt sukkið!

4 april 2013

Það er örugglega hellingur sem kroppurinn gerir til að hreinsa burt drasl og dót. Ekkert örugglega neitt, hann sér um þetta flesta daga (meðan þú sefur). En stundum er gott að bústa aðeins ferlið. Guðbjörn í hvatningu.com sendi mér þetta ráð sem hann kallar lifrarhreinsun. Mér líst ekkert illa á þetta svoleiðis. Ég bara læt kroppinn um málið. Er þetta eitthvað fyrir þig?

KISS - Tískuverslun

20 mars 2013

Tískuverslunin Kiss er orðin 25 ára!
 
Búðin byrjaði sem rokk-verslun og seldi þá aðalega hljómsveitarboli, barmmerki, leðurjakka og grínvörur. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Meðal annars er búið áð stækka búðina þrisvar sinnum og breyta henni í takt við tímann.

Slæmur dagur? Snúðu nærbuxunum á rönguna...

6 mars 2013

Fáránleg hjátrú: 
 
Ekki tyggja tyggigúmmi að næturlagi, það boðar ekki gott. Eða þetta: Sú leikkona sem vinnur "Óskarinn" er líklegust til að hætta með maka sínum. Hættu nú alveg, því að ganga í nærbuxum á röngunni, gerir slæman dag, betri. 

Þetta er aðeins dæmi um fáranlega hjátrú sem sjá má á meðfylgjandi myndbandi.

Freistandi bananabíll í torfærum

26 febrúar 2013

Dabbi Grallari sendi inn þessa sniðugu uppskrift fyrir krakka fyrir um þremur árum síðan inn á síðuna freisting.is. Á þessum tíma hefur Dabbi fengið alls 2429 flettingar og fyrir uppskriftina skorar hann næstum þrjár stjörnur. 
 
Sniðugur strákur! Hollt og gott og ekki síst frábær skemmtun og skapandi fyrir yngstu kynslóðina. 
 
 

Fortíðin í núinu

18 febrúar 2013

Ég hef oft, eiginlega of oft fengið ákúrur fyrir að skrifa um fortíðina mína. Sem þar afleiðandi er líka annara, annað er óhjákvæmilegt.
Fæ óteljandi sinnum þessa spurningu "Hvers vegna ertu ævinlega að velta þér upp úr fortíðinni"? "Liðið er liðið, getur þú ekki látið þar við sitja"? Og svo framvegis.

Al...ein -smásaga

14 febrúar 2013

Ég hefði gjarnan viljað hafa þig hjá mér í dag, það hefði verið mikill styrkur í því. Jarðarförin reyndist mér erfiðari heldur en ég hafði búið mig undir. Allt þetta fólk, hvaðan kom það eiginlega. Ég þekkti jú meirihlutann og kannaðist við suma en það voru samt margir þarna sem ég hafði aldrei séð.

Ég veit hann fer illa með mig en ég elska hann

5 febrúar 2013

Sambúð með siðblindum einstaklingi byrjar oft sem spennandi og eldheitt ástarsamband. Konan [að sjálfsögðu getur þetta einnig átt við karl en af því að siðblindar konur eru miklu færri en karlar er þolandi siðblinds eintaklings oftast kvenkennd í þessari færslu] er blinduð og upp með sér af gullhömrum þess siðblinda, áhuga hans og kappsemi og fellst á allar uppástungur hans og áætlanir.

Lost - ERÓTÍK

24 janúar 2013

Hálfskjálfandi af eftirvæntingu tiplaði hún upp stigann, berfætt. Dúnmjúkt teppið deyfði hljóð fóta hennar. Hún vissi að senn var komið að þessum tímamótum – þau höfðu ákveðið að hittast þarna kl.15:00, stundvíslega. Hún smellti kortinu í. Blíðlegur smellur bauð hana velkomna inn í dulúð herbergisins. Hún fann fyrir ákveðnum léttleika

ERÓTÍK: Óhappið

21 janúar 2013

Kvöldið nálgaðist. Hún fann pirringinn læðast um sig. Þau höfðu slitið sambandi fyrir rúmum fimm mánuðum. Hún fann að hún saknaði hans. Kannski ekki hinna hverdagslegu stunda yfir matarborði í þegjandi þögninni. Þögnin var orðin of stór partur vegna ágreinings sem virtist ekki finna sameiginlegan farveg.

Handáburður og varasalvi

10 janúar 2013

Nú þegar veturinn er í hámarki og kuldaboli er endalaust að bíta, vilja hendur og varir oft verða þurrar og sprungnar. Þá eru varasalvi og handáburður nauðsynlegir í veskið. Prófið þessar einföldu uppskriftir og haldið höndum og vörum mjúkum og fínum yfir veturinn.
 

Hann hellti rautt í glas....

6 janúar 2013

Svona svona...þetta eru launin fyrir að hafa fæðst með fallegan barm og drullufokk flottan rass! Veskú, velkomin í mína veröld.
 
Hvað heldurðu að hafi gerst í gær....og já þú ættir að sjá mig núna sko! Ojbara.is sko!
Manstu eftir þessum sæta þarna? Rússa andskotanum eða hvað hann er?
 

Kortér í jólin

21 desember 2012

Nú eru jólin handan við hornið og ef þið eruð á siðasta snúning með eitthvað af gjöfum eða eigið eftir að pakka inn, þá eru hérna nokkur dæmi sem mér finnst bæði falleg og sniðug. Verðinu er líka stillt í hóf…!

Geggjaður skyrtukjóll

20 desember 2012

Þennan flotta kjól geta allir gert. Það eina sem til þarf eru þrjár skyrtur, saumavél og lágmarkskunnátta í saumaskap.

Skyrturnar eru klipptar til eins og sjá má og saumaðar saman. Efri hlutinn og ermar eru úr einni herraskyrtu. Bakstykkið er úr framhlið á annarri skyrtu og framstykkið, hluti úr framstykki úr þeirri þriðju.

 

G-blettur strákanna

19 desember 2012

Já, stelpur mínar. Við höfum hlustað á endalaust blaður um G-blettinn okkar. Sumar eru kannski enn að leita að þessum unaðstakka.

...það er staðreynd að strákarnir eiga líka svona punkt. Og hver þarf að vita af því, ef ekki við stelpurnar?

Skyrgámur á í vandræðum með úrvalið

19 desember 2012

Skyrgámur er sennilega heppnastur þeirra jólasveinabræðra. Hann flýtir sér að setja í litla skó svo hann geti síðan laumast í einhvern stórmarkaðinn þar sem hans bíða fullar hillur af óteljandi tegundum af skyri.

Ég á heimsins stærsta typpið!

18 desember 2012

Sá karlmaður sem á allra stærsta getnaðarliminn og er lifandi í dag heitir Jonah Falcon, frá Brooklyn, USA.  
 
Hann mældist 34,9 og mun mælingin hafa átt sér stað árið 1999. En samkvæmt tímaritinu Rolling Stone mun limurinn hafa mælst  34.3 sentimetrar á lengd í reistri stöðu nokkrum árum síðar.  

Þykjustu eða alvöru?

12 desember 2012

Jólin eru að koma og eftir þessi jól býst ég við að ljótasti kosningavetur í sögu Íslands fari á fullt. Ég sé fyrir mér að fjórflokkurinn muni nota öll trixin í bókinni til að viðhalda þykjustu samfélaginu sínu.
"It is a terrible thing to see and have no vision."   H. Keller-